19.12.05

Framtíðarmynd?

Þrjár systur 92 ára, 94 ára og 96 ára búa saman í litlu húsi. Eitt kvöldið lætur sú 96 ára renna í baðið. Hún setur annan fótinn ofan í baðið þegar hún hinkrar og kallar niður “stelpur var ég að fara ofan í baðið eða var ég að koma úr því”??
Sú sem var 94 ára kallar til baka “ það veit ég ekki , ég skal bara koma upp og athuga málið” Síðan byrjar hún að ganga upp stigann upp á efri hæðina. Hún hinkrar á leiðinni og kallar “heyriði stelpur var ég að fara upp eða var ég að koma niður”??
Sú sem var 92 ára situr við eldhúsborðið og drekkur te og er að fylgjast með samræðum systra sinna. Það hnussar í henni og hún hristir hneyksluð höfuðið um leið og hún segir við sjálfa sig.“Ég ætla bara rétt að vona að ég verði aldrei svona agalega gleymin eins og þær systur mínar”. Síðan bankar hún undir borðið og segir: “sjö, níu ,þrettán”. Hún kallar svo til systra sinna “ verið rólegar ég skal koma upp og hjálpa ykkur við að leysa úr þessu um leið og ég er búin að athuga hver er að banka við dyrnar.