18.2.08

Alltaf að græða


Ég er ein af þessum heppnu sem fæ ávísun frá tryggingarfélaginu mínu vegna þess að ég er tjónlaus. Þvílik ánægja, það er ekki á hverjum degi sem maður fær ávísun uppá 13.112 krónur senda í póstinum. Að vísu dró svolítið úr ánægjunni að opna næsta umslag sem hafði að geyma reikning frá þessu sama tryggingafélagi uppá 13.864. Mér finnst nú að það hefði mátt geyma hann svolítið og leyfa mér að vera ánægð með skotsilfur í veskinu, ég hefði þá ekki verið með það á tilfinningunni að það væri verið að plata mig.