1.3.06

Minnistæð flugferð

Samstarfskona mín ætlar til Kúbu um páskana, mér finnst það löng ferð til að dveljast í viku. Því ég man eftir því þegar ég fór til Kúbu fyrir 25 árum, þá tók ferðin 30 tíma út en 40 og eitthvað tíma til baka. Ég fór til Kúbu í nóvember 1980 til að byggja hús fyrir sósíalismann, ég á meira að segja viðurkenningarskjal fyrir að vera fyrirmyndarverkamaður. Einn ferðafélaginn orti vísu af því tilefni sem ég kann enn:

Stakkanova stóð þar úppúr
stóra orðu fékk.
Aldrei var á svipinn súr
sífellt vinnan gekk.

Stakkanov var víst frægur fyrirmyndarverkamaður í Sovétríkjunum.

En nóg með það ég ætlaði að segja frá hræðilegustu flugferð lífs míns. Við lögðum af stað frá Íslandi með morgunflugi til Kaupmannahafnar, biðum þar allan daginn, flugum síðan seint um kvöldið til Austur-Berlínar með því fyrirmyndarflugfélagi Interflug, ríkisflugfélagi Austur-þýska alþýðulýðveldisins. Ég hef hvorki fyrr né síðar flogið með vél sem hrikti jafn mikið í, það var eins og nauðsynlegir hlutar vélarinnar væru að detta af. Í Austur-Berlín biðum við lengi en fórum svo í stórri þotu til Gander á Nýfundnalandi, þar var millilent og síðan komið til Havanna um miðjan dag daginn eftir. Þar tók við sósíalísk skriffinska því á þeim árum voru ferðamenn sjaldséðir á Kúbu, börnin á götunum hlupu á eftir okkur og hrópuðu: „rússkí, rússkí“. Næsta mánuðinn áttum við góða daga í vinnubúðum nálægt San Antonio. Við vorum í byggingarvinnu og tíndum appelsínur. Á kvöldin voru svo fyrirlestrar um fyrirmyndarríki sósíalismans. Þarna var drukkið mikið romm og allir dönsuðu rúmbu. Einu fréttirnar sem bárust frá hinum vestræna heimi voru um morðið á John Lennon. Einu ummerkin um jólin voru þegar Svíarnir dönsuðu í kringum 20 sm hátt pappajólatré. Heim á leið var haldið milli jóla og nýárs. Allir voru drifnir út á flugvöll um miðjan dag. Þar var hangið í fríhöfninni í marga klukkutíma við að skoða vindla og romm. Við vorum loksins komin út í vél um níu leytið og allt virtist tilbúið til að leggja af stað. Finna þá ekki flugfreyjurnar, sem voru eins og austur-þýskir kúluvarparar í útliti og framgöngu, laumufarþega á einu salerninu. Upphófust nú mikil læti og gauragangur, manngreyið var dreginn út og buffaður á malbikinu fyrir utan vélina. Skrítið að einhver lagði í að reyna að flýja sósíalismann. Nema hvað, allir voru reknir út úr vélinni, öllum farangri hlaðið á flugbrautina og hver varð að þekkja sína tösku. Allir voru síðan skráðir inn aftur. Þetta tók marga, marga klukkutíma. En loksins eftir langa mæðu tók vélin á loft og við lögðum af stað heim á leið. Mannskapurinn var orðinn slæptur enda langt liðið á nótt og sofnaði fljótt. Enginn fékk að sofa lengi því fljótlega var rifið í öxlina á manni, hrist og hrópað í eyra manns: „das essen“ og bakka skutlað á borðið fyrir framan mann. Ég man ekkert eftir millilendingunum á Gander og í Austur-Berlín en til Kaupmannahafnar komum við um kvöld. Þá var vélin til Íslands löngu farin en flugfélagið sendi okkur á Hótel Globetrotter þar sem ég hrundi í rúmið og rumskaði ekki fyrr en að ferðafélagi barði á hurðina og hrópaði að við værum að verða of sein í flugið heim. Ég man hvað ég varð fegin að komast heim til pabba og mömmu og opna jólapakkana sem biðu eftir mér og fara að sofa í mínu eigin rúmi.
Og ég á eftir að fara aftur til Kúbu, það hlýtur að vera auðveldara að komast í dag fyrst að svona margir fara í skreppiferðir þangað. Mig langar bara ekki mjög mikið að fara í pakkaferð með Íslendingum, mig langar ekki til að minningar um stolta og lífsglaða þjóð spillist við að kynnast fólki sem gengið hefur á vald smjaðri fyrir vestrænum túristum.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Heil og sæl Þjóðhildur !

Mikið er nú gaman að sjá að frúin er orðin svona liðug í fingrunum og bloggar orðið meira en sjálf ísdrottningin !!! Sú drottning er greinilega komin með ritstíflu og hallast ég helst að því að hún hafi fengið gigt eða eitthvað álíka við allan útsauminn þarna um daginn enda kom heill lærleggur útúr því. En hvernig er það kæra Þjóðhildur er ekki boðið upp á appelsínutínsluferðir lengur til fyrirheitna landsins ? Ég veit um einn sem að færi með þér umhugsunarlaust í það. Hann heitir Albert og býr í Hafnarfirði. Hann á sko tvö viðurkenningarskjöl sjáðu til.
Kær kveðja,
Guðrún Hvergerðingur

11:05 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home